föstudagur, september 09, 2005

Var sagt við mig áðan að ég væri feit. Hef einu sinni áður lent í því. Þá sá pabbi ástæðu til að vara mig við því að verða of feit. Skil þetta ekki alveg. Lít á mig sem hraustlega. Breytist eftir því hvar á landinu ég er hvað mér finnst. Í sveitinni þá er ég grön. Í bænum er ég chubby. Getur þó ekki verið að ég breytist það mikið þegar ég ferðast milli staða. Hlýtur þá að vera bara í hausnum á mér.

Fór á fyrstu karateæfingu vetrarins áðan. Gaman að byrja aftur. Held það sé komin tími á að kaupa sér galla og belti. Er bara með gula beltið. Sumir eru komnir með appelsínugula beltið. Við samgleðjumst þeim.

Hékk á Sirkus áðan. Drakk bara kók þar sem ég var keyrandi. Ömurlegt að chilla þar edrú. Það venst kannski. Ætla nú samt ekki að prófa það mikið oftar. Sleppur þegar maður þarf þess.

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Úff - þetta er svo fucked. Þú ert ekki feit, bara svo það sé á hreinu :) En damn hvað ég veit hvað þú meinar, man eftir 55 kg dögunum okkar þegar hægt var að borða hvað sem er og ég veit ekki hvert það fór, amk ekki á rassinn og magann eins og þessa dagana.

Hvað á maður að gera? Vera endalaust í megrun og sjálfspyntingu eða leyfa líkamanum að vera eins og hann vill sjálfur?

Gaman að fá þig aftur á karateæfingar :) Ertu með harðsperrur í handleggjunum?

september 09, 2005 9:41 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

kók í poka...
það verður ekkert kók um helgina mín kærust :D bara party party og gleði

september 09, 2005 12:24 e.h.  
Blogger Halla Maria said...

ha ha ha þú feit?

september 09, 2005 12:41 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

þú er ekki feit, mín kæra.

september 12, 2005 6:47 e.h.  
Blogger Sóley said...

Hömmmm....held sko alls ekki að ég sé feit, bara velta fyrir mér undarlegheit þesskonar hugsana. En takk ;)

september 14, 2005 4:44 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hei feitabolla - hvernær værir að þú færir að blogga meira activkt!!!

september 15, 2005 7:41 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home