mánudagur, apríl 10, 2006

Jáhá!

Prófaði þessa helgina að sleppa því algerlega að drekka áfengi. Hljómar svo sem ekkert sérstakt. Helgin lengdist fyrir vikið. Engin tími fór í þynnku. Skemmti mér án þess að þurfa taka einhverjum afleiðingum og án þess að eyða alltof miklum peningum. Gaman!

Var í karate-æfingabúðum um helgina. Japanskur sensei að kenna íslenskum karateiðkendum. Gaur sem er 61 árs. Byrjaði að æfa karate þegar hann var 15 ára, æfði sex daga vikunnar, þrjá tíma á dag í fjögur ár samfleytt. Wúsj!!! Hann er með 8.dan, sem aðeins örfáir eru með í öllum heiminum.

Svo á sunnudagseftirmiðdeginum var gráðun og nú er ég stoltur rauðbeltingur, jei.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

haha..já ég hef einmitt verið að prófa þessar edrú helgar líka. það er ótrúlegt hvað mikill tími vinnst!

apríl 11, 2006 2:27 e.h.  
Blogger Halla Maria said...

hey! takk fyrir góðu samlokuna um í gær og gott kaffi. það er eðalgott að koma til ykkar hjóna í heimsókn:-)
sjáumst fljótlega!

apríl 15, 2006 4:20 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home