föstudagur, júlí 15, 2005

Komin heim

Ég er komin heim í sveitina og það er mjög svo huggulegt. Kom fljúgandi á miðvikudaginn, veðrið var gott og útsýnið því prýðisgott. Mikið ofsalega eru austfirðirnir fallegir, svo stórbrotnir eitthvað.
Það er hugsað vel um mig og beið mín bíll á flugvellinum. Ég settist því bara undir stýri og brunaði yfir til Bakkagerðar.
Það hefur grænkað mjög mikið síðan ég fór og allt umhverfið er orðið svo ótrúlega fallegt, stoppaði einstaka sinnum bara til að virða fyrir mér útsýnið.

Ferðin til Köben var frábær. Hrói var fínn og veðrið hefði ekki geta verið betra. Skemmtilegt fólk var svo áfram í Köben og alltaf eitthvað að gera. Ég verslaði eins og mófó og kláraði allan peningin minn - þetta var frábær ferð í alla staði :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home