mánudagur, október 24, 2005

Spámaður.is sagði mér að mitt persónuleikatré væri:

Fura - Vandlæti
19.02-28/29.02 & 24.08-02.09

Manneskjan leitar í þægilegan félagsskap, býr yfir ómældum styrk og lagar líf sitt að sínum þörfum. Hún er athafnasöm og góður félagi, þótt hún sé ekki alltaf beint vinaleg.

Manneskjan á auðvelt með að verða ástfangin en ástríðan endist sjaldan lengi. Hún gefst fljótt upp. Hlutirnir þurfa að vera fullkomnir og því auðvelt að verða fyrir vonbrigðum. Manneskjan er þó traust og hagsýn að eðlisfari.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

þetta hljómar eins og þú sért fúll komittmentfóbikk...

ertu viss um að þú hafir ekki slegið in mitt ammæli?

nú verð ég líka að tékka á þessu, hmpf!

október 25, 2005 6:13 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home