mánudagur, janúar 22, 2007

Konur til sjávar og sveita, nær og fjær! Heyr mín orð er ég boða boðskap þæginda. Þegar það truflar mig ekki að vera á blæðingum. Þegar ég gleymi að ég sé á túr. Nei! segja konur. Slíkt er ei hægt. En jú! Slíkt er hægt, ég hef fundið sannleikann: Álfabikarinn góði! Umbyltir lífi kvenna sem þola ekki að hafa rakt bindi í klofinu. Kvenna sem þreyttar eru á að skipta um túrtappa á fjagra tíma fresti. Kvenna sem vilja sem minnst hafa fyrir þessu tímabili á mánaðar fresti. Lifi byltingin!!!!

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ó, af hverju er ég að missa?
Eins og maður hefur bölsótast yfir túrum, túrverkjum og túrþunglyndi, saknar maður þessa hallærisástands þegar það heyrir sögunni til. Er ekki mannskepnan furðulegt fyrirbæri?

janúar 30, 2007 9:11 e.h.  
Blogger Sóley said...

Haha! Suss, þegar álfabikarinn er komin í gagnið þá hverfa bölsóttir og túrþunglyndi ;)

janúar 30, 2007 11:08 e.h.  
Blogger Unknown said...

Lítið að gerast hérna...

mars 10, 2007 3:33 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home