þriðjudagur, nóvember 07, 2006

Loksins datt ég, eða öllu heldur, rann ég niður stigann á KB. Hlaut að koma að því. Hef svo oft velt því fyrir mér hvort fólk sé ekki veltandi þarna niður í sí og æ um helgar. Jú,jú, svo er víst. Var með fullt glas af bjór, fór ekki mikið til spillis - hjúkket. Er með massa marblett á framhandleggnum sem minnir mig á reynslu mína. Svo gekk einhver á mig og bjór sullaðist framan á mig. Heyrði einhvern spyrja hvort ég væri óheppnasta manneskjan. Get reyndar neitað því, er frekar heppin.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

haha...!

V

nóvember 07, 2006 6:36 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

úff, harkalegt, betra samt að renna heldur en að detta;-)

nóvember 08, 2006 5:04 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gott að bjórinn bjargaðist....
Alltaf að hafa aðalatriðin á hreinu..:)

nóvember 14, 2006 9:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home