Fatahönnuður eða sálfræðingur? Gera bæði. Hvort er þá sniðugra að byrja á? Bæði? Langar að fara fljótlega aftur í skóla. Togast á milli þess að vera skynsöm eða gera það sem hljómar skemmtilegra. Skynsemin segir mér að stefna að því að verða sálfræðingur sem fyrst. Þegar ég hugsa dæmið lengra þá er ég ekkert svo viss hvort ég myndi nenna að taka á móti skjólstæðingum á stofu til mín. Væri betri í rannsóknarverkefnum einhverjum. Tölfræðigreina gögn. Hljómar þurrt. Skrifa skýrslur. Hljómar þó meiri spennandi en að hitta fólk allann daginn sem er ekki kátt. Rannsóknarsálfræðingurinn Sóley - hljómar vel. Rannsóknarsálfræðingur/fatahönnuður Sóley - hljómar rosa vel. Jájá, voða erfitt líf. Gott að þetta sé stærsta vandamál mitt þessa dagana.
mánudagur, desember 11, 2006
Previous Posts
- Góð helgin sem var að líða. Kynntist fullt af nýju...
- Kári fann mynd sem ég sá fyrir nokkru um skilnaðar...
- Fuck Yeah! Veit ekki alveg af hverju mér datt í hu...
- Var að koma heim af kvöldvakt. Á eldhúsborðinu er ...
- Loksins datt ég, eða öllu heldur, rann ég niður st...
- Það eru nammiþjófar á sveimi heima hjá mér. Ég bý ...
- Helgin liðin og vikan að byrja. Tíminn er svooooo ...
- Skemmtileg danstónlist.Tékkit!
- Skemmtilega skakkt
- OMG hvað ég er spennt! Ætla að cancla öllum mínum ...
2 Comments:
Fatasálfræðingur hljómar vel
elta drauminn. tvímælalaust. skiptir engu máli hvort að þú launchir sálfræðikarírinu núna eða eftir 3 ár.
Skrifa ummæli
<< Home