laugardagur, apríl 09, 2005

Hjartanlega

Er að sukka uppí sófa og að horfa á brúðkaup Karls
bretaprins og Camillu. Greyið Baldvin er að segja frá
því sem er að gerast og konan þarna sem var með
einhverja spurningaþætti í sjónvarpinu einhvertíman.
Það getur nú ekki verið mjög gaman að vera í þessu.
Eða hvað? Kannski að þetta sé fín vinna, hangsa að
horfa á frægt fólk og röfla aðeins um það sem fyrir ber.

Mikið er ég ánægð með kvikmyndahátíðina sem er nú í gangi :)
Sá Hotel Ruwanda í gær, mjög góð mynd, rosalega efið.
Í kvöld er það svo Motorcycle diaries og sæti aðalleikarinn
verður á sýninguna og svo spurt og svarað eftir á.

"Jájá, fer að hitna í kolunum nú þegar silkihúfurnar fara að koma"

1 Comments:

Blogger Sóley said...

aha! leiðinlegt fyrir þig, en bara for u're information þá var þetta frekar slappt. Reyndar fínt þvínku sukk ;)

apríl 23, 2005 1:39 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home