mánudagur, janúar 03, 2005

jólin, jólin

jæja, þá er ég loksins að jafna mig á jólunum
og gamlársfögnuði. Er sko bara búin að vera
að chilla - nennti ekki að gera neitt og þar
með talið að blogga. Það eru í sjálfu sér ekki
komnir nýjir tímar, ég er ennþá að chilla og
mun ekkert láta sjá mig hér fyrr en skólinn
byrjar aftur. En ég er búin að hafa það rosalega
gott, hef átt yndislegar stundir með fjölskyldu minni
- fórum öll saman í bíó á annan í jólum í staðin fyrir
jólaboð :) og áramótin voru nákvæmlega eins og
ég hafði óskað mér - í faðmi fjölskyldunnar yfir
mótin sjálf og svo í party með mínum vinum og
líka fólki sem ég þekkti ekki mikið en hafði tækifæri
á að spjalla við.

Þannig að sjáumst hress og kát mánudaginn 17.janúar ;)

Óska öllum gleðilegt nýtt ár og megi ykkur vegna vel á nýja árinu :)