föstudagur, júlí 15, 2005

joinks!

Borgaði ekki skráningargjaldið í skólann í tæka tíð - var á hróa og í sukki bara. Grunaði ekki að greiðsluseðillinn sem var kominn inná netbankann minn yrði farinn 5.júlí - en eindagi var 4.júlí. En það var nú bara það sem gerðist!!!
Dadaradada....nemendaskrá fór svo í sumarfrí daginn sem ég kom heim og er lokuð til 2.ágúst - redda þessu bara þá hugsaði ég með mér. En það eru greinilega fleiri slugsar en ég í HÍ þar sem þeir hafa séð ástæðu til að opna sérstakt mail fyrir okkur þar sem við getum beðið um undanþágu og tilgreint ástæðu þess að við sluggsuðumst. Gerði það - var erlendis og ekki með aðgang að netbankanum mínum. Nennti ekkert að vera að flækja þetta þar sem ég er viss um að þetta sé bara formsatriði.

Fékk svo sent automatiskt svar:

Beiðni þín hefur verið móttekin.
Rökstuddar beiðnir um árlega skráningu fyrir háskólaárið 2005-2006, sem berast eftir 22. apríl, verða teknar til athugunar og leitast við að afgreiða þær af eða á innan þriggja vikna frá því þær berast.

Shit! Ég vona að ég hafi rétt fyrir mér með að þetta sé bara minor formsatriði því minn "rökstuðningur" er bara léleg afsökun.
Þannig að, joinks!!

Komin heim

Ég er komin heim í sveitina og það er mjög svo huggulegt. Kom fljúgandi á miðvikudaginn, veðrið var gott og útsýnið því prýðisgott. Mikið ofsalega eru austfirðirnir fallegir, svo stórbrotnir eitthvað.
Það er hugsað vel um mig og beið mín bíll á flugvellinum. Ég settist því bara undir stýri og brunaði yfir til Bakkagerðar.
Það hefur grænkað mjög mikið síðan ég fór og allt umhverfið er orðið svo ótrúlega fallegt, stoppaði einstaka sinnum bara til að virða fyrir mér útsýnið.

Ferðin til Köben var frábær. Hrói var fínn og veðrið hefði ekki geta verið betra. Skemmtilegt fólk var svo áfram í Köben og alltaf eitthvað að gera. Ég verslaði eins og mófó og kláraði allan peningin minn - þetta var frábær ferð í alla staði :)

miðvikudagur, júlí 13, 2005

ég elska...

...að eiga bróðir sem býr á frábærum stað í Köben og á skemmtilegan vinahóp þar
...að eiga skemmtilega vini í Reykjavík
...að koma í heimsókn
...að endurnýja gamlan og góðan kunningsskap
...að fara á góða tónleika
...að að fatta að maður kemst á tónleika sem maður bjóst ekki við að komast á :)

Lífið er yndislegt :):):):):)

og svo fer ég aftur austur á morgun...samt á morgun...en kem þó innan tíðar í bæinn - vei :D

life is sweet :D